Sumarið í fyrra var besta sumarið mitt í mörg ár og það eru engar ýkjur. Það var ýmislegt sem spilaði þar inn í, m.a. það að við keyptum okkur jörð upp í sveit og öll sjálfsvinnan hjá mér. Það sem af er þessu sumri hefur verið jafnvel ennþá betra.
Kröfurnar
Í fleiri ár en mig langar til að muna hafa sumrin og vorin verið mér mjög erfið og stundum nánast óbærileg. Hluti af þessum erfiðleikum orsökuðust af samfélagslegum væntingum til sumarsins. Kröfur um endalaus plön, úthald og orku fyrir stuð og „skemmtilegheit“. Sumrin og vorin ollu mér hins vegar bara kvíða og óöryggi.
Birtan
Birtan hefur haft mikil áhrif. Birtan er svo mikil og það á bara að vera jákvætt, dagurinn lengist og lengist þar til það er ekkert myrkur lengur. Þetta er stimplað sem jákvætt, spennandi og orkugefandi. Frá því ég man eftir mér þá hefur mér alltaf fundist eins og myrkrið haldi utan um mig og passi upp á mig. Ég gat einhvern veginn falið mig í myrkrinu og ekki verið eins áberandi. Myrkrið er rólegra og yfirvegaðra, það er einhvern veginn meira eins og ég. Birtan er aftur á móti æpandi og taumlaus, með allt of mikla ringulreið og óvissu.
Rútína eða rútínuleysi
Sumrinu fylgir líka rútínuleysi, skólar loka, leikskólar loka, meðferðaraðilar fara í sumarfrí, stofnanir loka. Fyrir marga eru sumrin kannski frelsi frá rútínunni, en fyrir mér er þetta óvissustig sem kostar meiri andlega orku en venjulega. Ég hef alltaf fundið fyrir öryggi í rútínu og á sama hátt fundið fyrir óöryggi í rútínuleysi.
Ég heyrði um daginn einn aðila lýsa því hvað það hefði verið mikið álag fyrir hann þegar meðferðaraðilinn hans fór í sumarfrí. Þetta er eitthvað sem ég tengi vel við. Þetta hljómar kannski fyrir sumum eins og eigingirni, en það er ekki það að ég vilji ekki að meðferðaraðilinn minn fari í frí, auðvitað vil ég að hann fari í frí og njóti þess sem best. En það myndast ógnvekjandi tómarúm þegar hann fer í frí og þá verð ég einhvern veginn í lausu lofti. Þegar maður er á slæmum stað andlega þá er þetta sérstaklega erfitt.
Sumar á mínum forsendum
Ég hef verið að rækta ýmislegt í mörg ár, ekkert mikið en eitthvað smá og sum árin ekkert. Núna er ég hins vegar að rækta heilan helling og ég ákvað í vetur að ég ætlaði bara að rækta allt sem mig langaði til að rækta. Eins og fyrr segir þá keyptum við land í fyrra fyrir austan fjall og þar er nóg pláss fyrir mig að rækta það sem ég vil. Í vor forræktaði ég fullt af plöntum hér heima sem ég er svo búin að planta fyrir austan. Það er á einhvern hátt ómetanleg gjöf fyrir mig að geta verið þarna úti í náttúrunni að dunda mér við að setja niður matjurtir, blóm eða tré, setja upp girðingu, smíða eða vinna í safnhaugnum, allt saman á mínum forsendum. Hvort sem það er sól eða rigning og rok þá finnst mér þetta æðislegt og eiginlega eins og vítamínsprauta þó ég sé dauðþreytt á eftir. Náttúran er dásamleg og hentar mér sérstaklega vel. Náttúran er ekki með flóknar spurningar eða athugasemdir, hún ER bara og þá er ég líka bara. Ég held að þetta sé það sem myndi kallast núvitund.
Núna kann ég líka betur að meta geisla sólarinnar sem hjálpa gróðrinum að stækka og dafna.